22.07.1946
Sameinað þing: 1. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 8 í B-deild Alþingistíðinda. (5)

Rannsókn kjörbréfa

Frsm. 2. kjördeildar (Gísli Sveinsson):

Herra forseti. — 2. kjördeild hefur fengið til meðferðar bréf þeirra hv. þm., er sæti tóku í 1. kjördeild, og rannsakað öll þessi kjörbréf og hefur ekkert við þau að athuga. Leggur kjördeildin því til, að kjörbréf allra þessara þm. verði tekin gild.