09.10.1946
Efri deild: 15. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í B-deild Alþingistíðinda. (50)

Starfslok deilda

forseti (StgrA):

Þar sem þetta er síðasti fundur þessarar hv. deildar á þessu þingi, vil ég láta þess getið, að ég mun ásamt skrifara staðfesta þær fundargerðir, sem ekki hefur unnizt tími til að ganga frá, og skoða ég það samþ., ef enginn mælir því í gegn.

Ég þakka hv. deildarmönnum vinsamlegt og gott samstarf og prýðilega framkomu í minn garð og óska þeim árs og friðar í framtíðinni.