09.10.1946
Sameinað þing: 14. fundur, 65. löggjafarþing.
Sjá dálk 285 í B-deild Alþingistíðinda. (56)

Þinglausnir

forseti (JPálm):

Þá er eiginlegum störfum þessa þings lokið, því að á síðasta fundinum, sem settur verður eftir fáar mínútur, munu eingöngu fara fram þinglausnir. Skal ég leyfa mér að leita leyfis hæstv. ríkisstj. og samþykkis þingsins til þess að bregða að þessu sinni út af fyrirmælum þingskapa um að útvarpa þinglausnum.