14.05.1947
Neðri deild: 128. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1088 í B-deild Alþingistíðinda. (1163)

214. mál, framleiðsluráð landbúnaðarins o. fl.

Gunnar Thoroddsen:

Út af ummælum frsm. varðandi eina brtt. mína, sem hann telur mjög veigamikla, þá er hún ekki ný. Hún er búin að liggja fyrir, þótt það hafi verið í öðru formi. Hins vegar finnst mér sjálfsagt að verða við ósk hæstv. landbrh. og frsm. um að taka till. mínar aftur til 3. umr.