17.12.1946
Efri deild: 35. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1235 í B-deild Alþingistíðinda. (1342)

118. mál, bráðabirgðafjárgreiðslur 1947

Fjmrh. (Pétur Magnússon) :

Ég mundi telja, hvað mig snertir, þetta fullnægjandi. Ég ætla, að óhætt mundi að ganga út frá því, að hver sem með ráðherrastörf færi upp úr áramótunum, þá mundi hann telja sér heimilt að borga út þær greiðslur, sem l. mæla fyrir, þegar líka um greiðslur er að ræða, sem ber að greiða samkv. l.