27.01.1947
Efri deild: 57. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1328 í B-deild Alþingistíðinda. (1597)

141. mál, innflutningur og gjaldeyrismeðferð

Frsm. (Jóhann Jósefsson) :

Fjhn. hefur athugað þetta mál, sem í raun og veru er ekki annað en framlenging þess, sem nú þegar er í gildi, en mundi falla úr gildi um næstu mánaðamót, ef þessi framlenging fengist ekki. Hins vegar er gert ráð fyrir endurskoðun þessara laga, en henni var ekki hægt að koma við fyrir næstu mánaðamót. N. leggur til einróma, að frv. verði samþ. óbreytt.