12.02.1947
Efri deild: 70. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1347 í B-deild Alþingistíðinda. (1652)

166. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1947

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Ég vil aðeins þakka hæstv. forsrh. fyrir undirtektir hans og treysti því, að ríkisstj. beiti sér fyrir því, að fjárlög fyrir 1948 verði afgreidd á þessu ári og að næsta þingi verði lokið fyrir áramót. Ég treysti ríkisstj. til að gera það, sem hún getur, og þakka undirtektir hæstv, ráðherra.