11.02.1947
Efri deild: 67. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1374 í B-deild Alþingistíðinda. (1763)

66. mál, menntun kennara

Bernharð Stefánsson:

Herra forseti. Hæstv. kennslumrh. óskar þess, að honum gefist tækifæri á að athuga þetta frv. nánar áður en það er afgr. endanlega út úr d. Þess vegna mælist ég til þess, að frv. verði að þessu sinni tekið af dagskrá.