12.05.1947
Neðri deild: 126. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 1998 í B-deild Alþingistíðinda. (2577)

Fyrirspurnir um stjórnarráðstafanir

Jónas Jónsson:

Ég vildi mega beina því til hæstv. ríkisstj. í fyrsta lagi, hve mörgum millj. kr. er búið að eyða í framkvæmdir á báðum flugvöllunum. Mér er sagt, að það sé á 7. milljón. Í öðru lagi vil ég svo spyrja hæstv. ríkisstj., hve margir starfsmenn eru á Reykjavíkurflugvellinum og Keflavíkurflugvellinum, íslenzkir, og hvaða tekjur þeir hafa. — Ég þykist vita, að ríkisstj. sjái ekki ástæðu til að leyna neinu í þessu.