10.12.1946
Sameinað þing: 16. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 193 í D-deild Alþingistíðinda. (4925)

269. mál, héraðabönn

Þorsteinn Þorsteinsson:

Hæstv. forseti Sþ. óskaði umsagnar minnar sem forseta Ed. út af framkomu þingmanna vegna áfengisnautnar. Ég vil gefa þá yfirlýsingu, að síðan ég tók við forsetastörfum í Ed., hafa þm. aldrei flutt ræður undir áhrifum áfengis, og hef ég aldrei orðið var við, að þeir væru undir áhrifum áfengis í d. Ég tel mig svo ekki þurfa að hafa um þetta fleiri orð.