26.04.1947
Sameinað þing: 47. fundur, 66. löggjafarþing.
Sjá dálk 553 í B-deild Alþingistíðinda. (621)

12. mál, fjárlög 1947

Páll Zóphóníasson:

Þar sem búið er að veita fé til byggingar brúar á Blöndu, en sýnilegt er, að það mun ekki nægja til þess, svo að sú brú verður ekki byggð næstu 2–3 ár, þá er eðlilegt að nota það fé til byggingar þessarar brúar, þar til fé verður veitt til hennar. Segi ég því nei.