19.12.1947
Efri deild: 41. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 984 í B-deild Alþingistíðinda. (1312)

102. mál, almannatryggingar

Frsm. (Gísli Jónsson):

Ég vil þakka ráðh. fyrir svör hans í sambandi við málið, og eins og ég sagði, legg ég til fyrir hönd n., að málið verði afgr. hér óbreytt. Ef við hefðum haft lengri tíma, hefðum við reynt að finna einhverja leið í þessu máli, en ekki reyndist unnt að gera það eins og sakir stóðu, og munum við því verða að sætta okkur við að leggja til, að málið verði samþ. eins og það liggur fyrir.