23.03.1948
Efri deild: 85. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1212 í B-deild Alþingistíðinda. (1967)

118. mál, hitaaflstöð og hitaveita á Ísafirði

Lárus Jóhannesson:

Þar sem hér er aðeins um heimildarlög að ræða og í trausti þess, að ríkisstj. noti ekki þessa heimild, nema málið sé vel undirbúið fjárhagslega, og ekki verði ábyrgzt meira en 85% af stofnkostnaði, þá vil ég ekki leggja stein í götu þessa máls og segi því nei.