22.03.1948
Neðri deild: 78. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1229 í B-deild Alþingistíðinda. (2026)

Afgreiðsla mála úr nefndum o.fl.

Sigfús Sigurhjartarson:

Mér skilst á forseta, að tilætlunin sé að halda næturfund í þessari d. Mér þykja það nokkuð ströng vinnubrögð, þar sem fundur hófst klukkan 10 í morgun og til þess ætlazt, að þm. standi í útvarpsumræðum í kvöld og annað kvöld. Ég vil mótmæla þessum vinnubrögðum og vil, að borið sé undir atkvæði þm., hvort þessu eigi að fara fram.