23.03.1948
Neðri deild: 83. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 1241 í B-deild Alþingistíðinda. (2087)

Starfslok deilda

Einar Olgeirsson:

Ég vil þakka forseta góðar óskir og veit, að ég mæli fyrir munn allra þingdeildarmanna, þegar ég þakka honum góða og réttláta fundarstjórn og óska honum allrar giftu. Ég vil leyfa mér að biðja þingmenn að standa upp og taka þannig undir þessar óskir. — [Deildarmenn risu úr sætum.]