10.03.1948
Neðri deild: 72. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 53 í C-deild Alþingistíðinda. (2146)

20. mál, fjárhagsráð, innflutningsverslun og verðlagseftirlit

Samgmrh. (Emil Jónsson):

Herra forseti. Mig langaði bara til að spyrja hæstv. forseta, hvort þetta frv. muni vera löglega flutt samkvæmt 19. gr. þingskapa. Þar stendur, að lagasmíðum, skuli jafnan fylgja stutt grg. Ég sé, að þessu er ekki fylgt, og vildi ég gjarnan fá skýringu hæstv. forseta á þessu.