30.01.1948
Neðri deild: 49. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 97 í C-deild Alþingistíðinda. (2237)

7. mál, hvíldartími háseta á botnvörpuskipum

Hermann Guðmundsson:

Herra forseti. Ég vil leyfa mér að nota þetta tækifæri til þess að bera hér fram fyrirspurn til hv. sjútvn. þessarar hv. d., þar eð ég sé að form. hennar hv. þm. Ísaf., er hér viðstaddur. Ég flutti hér frv. til l. um breyt. á l. um hvíldartíma háseta á botnvörpuskipum ásamt hv. 8. þm. Reykv. Þann 8. okt. var málinu vísað til hv. sjútvn. þessarar d., en síðan eru nú liðnir 4 mánuðir. Ég vil nú leyfa mér að spyrja form. n. um það, hvað afgreiðslu þessa máls líður, og ég vænti þess mjög eindregið að fá álit n. um málið, áður en langt um líður.