24.02.1948
Efri deild: 68. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 690 í C-deild Alþingistíðinda. (2956)

155. mál, húsaleiga

Forseti (BSt) :

Hv. þm. Barð. (GJ) hefur fengið fjarvistarleyfi.

Út af orðum hv. 1. landsk. (SÁÓ) vil ég minna hann á og aðra hv. dm., sem viðstaddir voru umrætt tækifæri, að ég hringdi — og það allrækilega —, þegar þessi ummæli voru höfð í frammi.

Það er sýnt, að þessu máli lýkur ekki í dag, en ég vil spyrja hv. 6. landsk., hvort hann muni tala langt mál. (stgr A: Nei, ræða mín verður stutt).