20.12.1947
Sameinað þing: 32. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 61 í D-deild Alþingistíðinda. (3135)

39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Gísli Jónsson:

Ég vil aðeins sem tillögumaður hér að brtt. lýsa yfir því, að ég er mjög fús til að fallast á till. menntmrh., að málið verði ekki afgr. á þessum fundi, þar sem sjáanlegt er, að menn gera sérstakar tilraunir til þess að eyðileggja það. En ég vildi óska, að viðskmrh. lýsti yfir, að hann muni gera allt sem í hans valdi stendur til þess að greiða fyrir þessum mönnum. þar til þ. kemur saman og ákveðið verður, hvernig farið verður með þessi mál.