17.03.1948
Sameinað þing: 55. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 69 í D-deild Alþingistíðinda. (3161)

39. mál, gjaldeyrir til námsmanna erlendis

Páll Zóphóníasson:

Með því að ég tel brtt. 434 gefa möguleika til þess að veita giftum námsmönnum erlendis meiri styrk en þeim, sem eru ógiftir, vil ég ekki slá því föstu, að hver maður, sem utan fer, gifti sig fyrst til þess að fara með sína konu, og greiði því atkv. á móti brtt. 477.