14.10.1947
Sameinað þing: 6. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 162 í D-deild Alþingistíðinda. (3261)

5. mál, Parísarráðstefnan og dollaralán

Forseti (BSt) :

Þá er seinni umferð við þessar útvarpsumræður lokið, og hafa flokkarnir notað ræðutíma sem hér segir: Sameiningarflokkur alþýðu, Sósíalistaflokkurinn 7 mínútur umfram, en í fyrri umferð var langt frá því að hann notaði fyllilega ræðutíma sinn, Sjálfstæðisflokkurinn 3 mínútur umfram sinn ræðutíma, Framsóknarflokkurinn eina mínútu umfram, og Alþýðuflokkurinn 4 mínútur umfram.

Umr. um till. er lokið, en atkvgr. frestað til næsta fundar.