30.10.1947
Sameinað þing: 17. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 280 í D-deild Alþingistíðinda. (3303)

25. mál, Keflavíkurflugvöllurinn

Páll Zóphóníasson:

Það hefur verið upplýst við umræður um þetta mál, að því fer fjarri, að flugvallarsamningurinn hafi verið framkvæmdur eins og við verðum að óska, að hann sé framkvæmdur. Við umr. hafa ráðh. ekki tekið skýrt fram, hver stefna þeirra væri, og því tel ég sjálfsagt, að málið fái þinglega meðferð og verði athugað af nefnd. Með því vænti ég, að komið geti fram vilji Alþ., og eftir honum ber ráðh. að fara. Ég tel því sjálfsagt, að málið fái þinglega meðferð og fari til n., og þess vegna segi ég nei við þessari dagskrártill.