11.02.1948
Efri deild: 59. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 324 í B-deild Alþingistíðinda. (387)

146. mál, samkomudagur reglulegs Alþingis 1948

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Till. þessi er flutt vegna þess, að menn hafa komið auga á, að 10. okt. er sunnudagur, og óviðkunnanlegt er að setja þing á sunnudegi. Það varð því að ráði á milli mín og frsm. n., að við skyldum flytja brtt. og setja 11. í staðinn fyrir 10.