10.02.1948
Neðri deild: 54. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 327 í B-deild Alþingistíðinda. (408)

126. mál, réttindi Sameinuðu þjóðanna

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Þetta litla frv. hefur hlotið greiða afgreiðslu í Ed. Efni þess er það eitt, að starfsmenn og erindrekar Sameinuðu þjóðanna fái hér að njóta diplómatískra réttinda. Það er lítið áhorfsmál og rétt að fá þetta staðfest beinlínís á formlegan hátt í samræmi við alþjóðavenjur, og býst ég við, að það fái greiða afgreiðslu hér, og legg til, að því verði vísað til 2. umr. og allshn.