20.03.1948
Sameinað þing: 58. fundur, 67. löggjafarþing.
Sjá dálk 717 í B-deild Alþingistíðinda. (939)

129. mál, fjárlög 1948

Sigurður Bjarnason:

Við flm. þessarar brtt. höfum rætt það mál, sem þar ræðir um, við hæstv. félm- og fjmrh., Hafa hæstv. ráðh. gefið loforð um að láta fara fram rannsókn á ástandinu í þessum hreppum og hvernig þau félagslegu vandamál, sem þar hafa skapazt, verði leyst. Jafnframt hafa hæstv. ráðh. gefið munnleg fyrirheit um það, að að þessari athugun lokinni muni þær ráðstafanir verða gerðar, sem nauðsynlegar verði taldar til aðstoðar þessum hreppsfélögum. Að fenginni yfirlýsingu hæstv. félmrh. um þetta mundum við flm. geta tekið þessa till. aftur í trausti þess, að hæstv. ríkisstj. finni viðunandi lausn á málinu.