16.05.1949
Efri deild: 110. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 728 í B-deild Alþingistíðinda. (1113)

1. mál, togarakaup ríkisins

Gísli Jónsson:

Mér skilst, að þessi gr. hafi verið sett inn í frv. í hv. Nd., eftir að stj. bar frv. fram. Hún felur í sér töluverð útgjöld fyrir ríkissjóð og sömuleiðis áhættu, og í trausti þess, að hæstv. dómsmrh. vilji standa með mér í því að forða ríkissjóði frá slíkum útgjöldum, þó að hann svikist um það í sambandi við afgreiðslu fjárl., þá segi ég nei.