14.05.1949
Sameinað þing: 73. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1157 í B-deild Alþingistíðinda. (1539)

42. mál, fjárlög 1949

Skúli Guðmundsson:

Með skírskotun til þeirrar grg., sem hv. þm. A–Sk. flutti, og einnig með tilvísun til þess, að ég hef ásamt öðrum þm. á þessu þingi flutt frv. um meira verzlunarfrelsi handa almenningi í því skyni, að kaupmáttur launa verði meiri, og það frv. fengið afgreiðslu í Nd., en kemur undir úrslitaatkv. í Ed. væntanlega næstu daga, — með tilvísun til þessa hvors tveggja segi ég nei.