10.12.1948
Efri deild: 28. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 59 í B-deild Alþingistíðinda. (156)

92. mál, gjald af innlendum tollvörutegundum

Frsm. (Þorsteinn Þorsteinsson):

Herra forseti. Frv. þessu var fylgt úr hlaði og skýrt frá efni þess af hæstv. fjmrh. Það er því ekki ástæða til að fara að taka það upp aftur. Hér er í raun og veru ekki um neina lagabreytingu að ræða frá því, sem nú er, heldur er aðeins ætlazt til þess, að þessi ákvæði l. haldist áfram á næsta ári eins og þau eru á þessu ári. Nefndin hefur athugað frv., og þeir nm., sem mættir voru á þeim fundi, sem fjallað var um þetta frv., voru sammála um að leggja til, að frv. yrði samþ. eins og það liggur fyrir.