08.04.1949
Neðri deild: 88. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1680 í B-deild Alþingistíðinda. (2578)

100. mál, jeppabifreiðar

Skúli Guðmundsson:

Það mun vera innheimt gjald af öllum þeim, sem fá leyfi til innflutnings á vörum, til þess að mæta kostnaði við fjárhagsráð og deildir þess. Ég geri ekki ráð fyrir, að þeir, sem fá að flytja inn jeppabifreiðar, verði undanþegnir þessu gjaldi. En þarna skilst mér vera till. um að láta þá þar að auki greiða kostnað við úthlutun jeppanna, en það get ég ekki gengið inn á, nema eitt verði látið ganga yfir alla, að þeir greiði aukagjöld eins og þetta auk venjulega gjaldsins fyrir innflutningsleyfi, og segi nei.