18.12.1948
Neðri deild: 48. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 90 í B-deild Alþingistíðinda. (260)

66. mál, bifreiðaskattur o.fl.

Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):

Herra forseti. Fjhn. hefur haldið fund um þetta mál. Fór fundurinn mjög friðsamlega fram, eins og alltaf í þeirri nefnd. Samt klofnaði n. um málið. Leggur meiri hl. n. til, að frv. verði samþ. Ég vil hér með leyfa mér að afhenda hæstv. forseta nál.