07.05.1949
Efri deild: 99. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 1712 í B-deild Alþingistíðinda. (2633)
207. mál, bifreiðaskattur o.fl.
Forseti (BSt):
Mér hefur borizt svohljóðandi brtt. frá hæstv. fjmrh. við frv. til l. um breyt. á l. nr. 84 6. júlí 1932, um bifreiðaskatt o.fl.:
„Við 4. gr. Fyrir orðin „skal verja“ í b-lið kemur: „renni“.
Þessi till. er borin fram af ráðh., og þarf að því leyti ekki afbrigði, en þar sem till. er skrifleg, verður að veita afbrigði, sem ég leita hér með.