17.12.1948
Neðri deild: 43. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 156 í B-deild Alþingistíðinda. (294)

107. mál, dýrtíðarráðstafanir vegna atvinnuveganna

Forseti (BG):

Þar sem dráttur hefur orðið á því, að þskj. bærist, hefur hv. 2. þm. S-M. lagt fram skriflega brtt. í staðinn fyrir þá brtt., sem átti að leggjast fram prentuð. Hv. þm. hefur í ræðu sinni lýst þessari brtt., og sé ég því ekki ástæðu til að lesa hana upp, nema hv. þm. óski þess, en leyfi mér að leita afbrigða.