20.12.1948
Sameinað þing: 29. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 2168 í B-deild Alþingistíðinda. (3219)

Þingfrestun

forsrh. (Stefán Jóh. Stefánsson):

Forseti Íslands hefur í dag gefið út svo hljóðandi forsetabréf:

„Forseti Íslands gerir kunnugt:

Að ég, að tilskildu samþykki Alþingis, veiti forsætisráðherra umboð til þess að fresta um sinn fundum Alþingis, 68. löggjafarþings, frá 20. desember 1948, enda verði þingið kvatt til framhaldsfunda eigi síðar en 21. janúar 1949.

Ritað í Reykjavík, 20. desember 1948.

Sveinn Björnsson.

Stefán Jóh. Stefánsson.“

Samkvæmt þessu forsetabréfi lýsi ég hér með yfir, með því umboði, sem hér er veitt, að fundum þessa Alþ., 68, löggjafarþings, er frestað frá deginum í dag að telja og verður kvatt til fundar að nýju eigi síðar en 21. jan. n. k.