10.03.1949
Neðri deild: 78. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 42 í C-deild Alþingistíðinda. (3311)

88. mál, húsaleiga

Gylfi Þ. Gíslason:

Herra forseti. Ég vildi sem einn af fjórmenningunum, er athuguðu möguleikana á því, að stjórnarflokkarnir næðu samkomulagi um breyt. á húsaleigul., staðfesta það, sem hv. þm. Ísaf. sagði. Það tókst ekki að ná samkomulagi, og við höfum því skilað af okkur til stj., en félmrn. tók málið að sér. Hv. 5. þm. Reykv. hefur hins vegar tekið að sér að flytja sérstakt frv. um málið, og er ekkert við það að athuga. Upp úr athugun fjórmenninganna mun þó spretta frv., sem félmrn. eða einhver annar semur.