26.04.1949
Efri deild: 89. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 388 í C-deild Alþingistíðinda. (3808)

138. mál, eftirlit með rekstri ríkisins og ríkisstofnana

Sigurjón Á. Ólafsson:

Undir umræðum hér í gær lýsti hæstv. fjmrh. því yfir, að hann mundi geta fylgt brtt. á þskj. 567 við 5. gr., og ég lýsti því þá yfir að, að þeirri brtt. samþykktri mundi ég geta fylgt frv. Nú hefur þessi brtt. verið felld, og tel ég það skipta svo miklu efnislega, að ég sé mér ekki fært að greiða frv. atkv. mitt og segi því nei.