30.03.1949
Sameinað þing: 59. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 212 í D-deild Alþingistíðinda. (4486)

177. mál, þátttaka Íslands í Norður-Atlantshafssamningi

Sigurður Guðnason:

Ég lagði hér fram áðan ályktun frá útifundi, sem haldinn var í dag, og ég óskaði þess að fá skýr svör frá formönnum flokkanna við henni. Það svar vil ég fá nú úr forsetastóli eða beint frá formönnum flokkanna. Ég hef fullan rétt til þess að krefjast þess. Þessi ályktun var frá afar fjölmennum fundi. Ég óska þess að fá skýr og greið svör. Vilja ekki hv. formenn flokkanna svara forseta. Ég krefst þess að fá svör þeirra.