07.02.1949
Efri deild: 55. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 297 í B-deild Alþingistíðinda. (450)

17. mál, kjötmat o.fl.

Sigurjón Á. Ólafsson:

Ég er að vísu ekki nm. í landbn., en ég vildi spyrja hæstv. forseta, hvort það væri ekki sama, þó að það kæmi frá utannefndarmanni ósk um, að n. athugaði þetta ákvæði, sem frsm. hefur lýst sem stórri skemmd á frv. Ég vildi mælast til þess, að n. athugaði þetta í heild og hvort ekki væri rétt að breyta þessu ákvæði.