24.11.1948
Sameinað þing: 21. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 803 í D-deild Alþingistíðinda. (5137)

915. mál, skuldir og ábyrgðir ríkissjóðs

Fyrirspyrjandi (Jónas Jónsson):

Ég þakka hæstv. fjmrh. fyrir þessar upplýsingar, og hefur hann nú gert vel í því að gefa hæstv. Alþ. mikinn fróðleik, sem það hafði ekki áður. Það, sem er ákaflega eftirminnilegt úr þessum tölum, er það, hve mikið ríkisstj. hefur leyft sér að fá lánað í Landsbankanum, og er það íhugunarvert fyrir þingheim viðvíkjandi framtíðinni, hversu á að ráða fram úr, þannig að ríkið þurfi ekki að vera í þeim vandræðum, sem það er í nú. — Ég þakka svo hæstv. ráðh. fyrir hans greiðu svör.