09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í D-deild Alþingistíðinda. (5370)

936. mál, riftun kaupsamnings um Silfurtún

Atvmrh. (Bjarni Ásgeirsson):

Ég hef lýst því yfir áður í sambandi við umr. um þetta mál, að till. um heimild handa ríkisstj. til þess að taka þetta verkstæði á leigu var borin upp á ráðherrafundi og fallizt á hana af allri ríkisstj. Hitt man ég ekki, hvort sjálfur leigusamningurinn hefur verið borinn undir ríkisstj., en heimild til að taka þetta á leigu, og ég endurtek það, að heimild til að taka þetta á leigu var samþ. af ríkisstj.