09.03.1949
Sameinað þing: 47. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 892 í D-deild Alþingistíðinda. (5373)

936. mál, riftun kaupsamnings um Silfurtún

Gísli Jónsson:

Ég vildi í sambandi við þessa fsp. aðeins mega spyrja hæstv. atvmrh., hvaða ástæður liggja til þess, að kaupverðið var hækkað um 65% frá því, sem samið var um, þegar leigusamningurinn var gerður. Í öðru lagi liggja fyrir gögn í fjvn. um það, að ríkið hafi yfirtekið yfir 1 millj. kr. í víxlum frá Búnaðarbankanum, og vil ég spyrja ráðh., hvort hann veit, hvaða aðilar hafa staðið að þeim viðskiptum, þegar ríkið keypti og yfirtók víxlana.