06.04.1949
Sameinað þing: 63. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 919 í D-deild Alþingistíðinda. (5457)

943. mál, olíutankar á Keflavíkurflugvelli

Menntmrh. (Eysteinn Jónsson):

Herra forseti. Ég er sammála hv. fyrirspyrjanda, að þetta hafi dregizt nokkuð úr hófi. Ég hafði haldið, að þessu væri lokið. Það er rétt, að það verður að greina á milli afnota Bandaríkjastjórnar og annarra viðskiptavina, en það mun vera gert, þegar benzínið rennur í gegn, en á hvern hátt það er gert, veit ég ekki.