10.05.1949
Efri deild: 102. fundur, 68. löggjafarþing.
Sjá dálk 506 í B-deild Alþingistíðinda. (770)

16. mál, áburðarverksmiðja

Frsm. meiri hl. (Eiríkur Einarsson):

Formaður n. þeirrar, sem hafði mál þetta til athugunar, hefur að vísu ekki kvatt saman fund til þess að athuga þær breyt., sem frv. hefur tekið í Nd. En hins vegar hefur hann náð tali af ýmsum nm., a.m.k. 4 af 5, sem náðst hefur til, og hafa þeir orðið ásáttir um, að d. mæli með frv. með þeim breyt., sem hér um ræðir.