12.05.1950
Sameinað þing: 49. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 971 í B-deild Alþingistíðinda. (1194)

38. mál, fjárlög 1950

Dómsmrh. (Bjarni Benediktsson):

Mér skilst, að þetta eigi að vera lokastyrkur til félagsins, og er ég ekki á móti honum út af fyrir sig. Hins vegar mun ekki fullráðið enn, hvort félagið heldur áfram að starfa, og alls ekki upplýst, hvaða lokastyrk þarf, ef það hætti. Þess vegna hel ég ekki tímabært að taka ákvörðun um þetta efni, enda alltaf hægt að bæta félaginu upp síðar. Segi ég því nei við þessari till.