15.05.1950
Neðri deild: 102. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1041 í B-deild Alþingistíðinda. (1370)

163. mál, gengisskráning o.fl.

Viðskmrh. (Björn Ólafsson):

Ég vona, að það sé ekki ætlun hv. d. að fara að ræða þetta mál aftur, eftir þær miklu og löngu umræður, sem málið hefur fengið. Vil ég benda á það, að eigi þetta frv. að komast gegnum þingið á síðustu stundu, sem ég geri ráð fyrir að allir flokkar séu hlynntir, þá vænti ég þess, að menn stilli þessum umræðum mjög í hóf á þessu stigi málsins.