16.03.1950
Efri deild: 74. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1263 í B-deild Alþingistíðinda. (1967)

120. mál, ónæmisaðgerðir

Frsm. (Haraldur Guðmundsson):

Herra forseti. Heilbr.- og félmn. hefur athugað þetta frv. á ný og farið yfir það og borið það saman við gildandi lagaákvæði og við það, sem telja má föst framkvæmdaratriði. — N. hefur orðið sammála um að samþykkja það óbreytt. — Þess skal getið, að hv. þm. Seyðf. var ekki á nefndarfundi, er málið var afgreitt. Hinn hluti nefndarinnar mælir með því, að það verði samþ.