16.05.1950
Sameinað þing: 50. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 1487 í B-deild Alþingistíðinda. (2431)

103. mál, skógrækt

Bjarni Ásgeirsson:

Herra forseti. Mál þetta hefur orðið að átakamáli milli. deilda og lendir nú hér í Sþ. Nú hafa landbn. beggja d. komið sér saman um afgreiðslu á málinu, eða þeim þætti þess, er síðast varð að deiluatriði milli deildanna. Er brtt. á þskj. 780 flutt í tilefni af því samkomulagi, og standa því landbn. beggja d. raunverulega að þeirri till. Ég vil því leyfa mér að vænta, að á þessum grundvelli verði málið afgreitt.