20.12.1949
Sameinað þing: 12. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 76 í D-deild Alþingistíðinda. (3499)

25. mál, uppbætur á laun opinberra starfsmanna

Ingólfur Jónsson:

Þar sem öruggt er, að starfsmenn ríkis og bæja eru betur settir en verkamenn, sjómenn og bændur, og þar sem enn fremur er ljóst, að ekki er fé fyrir hendi til greiðslu launauppbóta, tel ég ábyrgðarleysi að samþ. að þessu sinni launahækkun í nokkurri mynd og segi því nei.