30.11.1949
Sameinað þing: 6. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 80 í D-deild Alþingistíðinda. (3522)

7. mál, hraðfrystihús og fiskiðjuver í Flatey

Flm. (Gísli Jónsson) :

Herra forseti. Ég skal með ánægju gera ráðstafanir til að afla upplýsinga um þessi mál, ef það tefur ekki framgang þessa máls, sem hefur sérstöðu, þar sem um er að ræða framlag hlutafjár frá hreppi og auk þess er alveg nauðsynlegt, að málið fái afgreiðslu í næsta mánuði.