13.01.1950
Efri deild: 33. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 207 í B-deild Alþingistíðinda. (456)

51. mál, tollskrá o.fl.

Haraldur Guðmundsson:

Ég fæ ekki séð, að ráðh. hafi heimild til að innheimta tollinn frá 1. jan. Skýring hefur komið fram á því, að dregizt hefur að leggja fram þetta mál, og mun ég greiða atkv. með því, en ég tek fram, að ekki er hægt að láta lögin verka aftur fyrir sig. Ég segi já.