15.03.1950
Neðri deild: 67. fundur, 69. löggjafarþing.
Sjá dálk 418 í B-deild Alþingistíðinda. (747)
125. mál, gengisskráning o.fl.
Emil Jónsson:
Ég tel þetta mál betur leyst með brtt. hv. 3. landsk. þm. og segi því nei við þessari till.
Gunnar Thoroddsen: Þar sem hæstv. ríkisstj. hefur þetta mál til athugunar, á hvern hátt vandi námsfólksins verði vegna gengisbreytingarinnar bezt tryggður, tel ég ekki rétt að slá neinu föstu á þessu stigi málsins og segi því nei.